﻿Sálmarnir.
141.
Drottinn, þú hefur hlustað á bæn mína, svaraðu mér fljótt! Heyr þegar ég hrópa til þín eftir hjálp. 
Líttu á bæn mína sem kvöldfórn, eins og reykelsi sem stígur upp til þín. 
Hjálpaðu mér, Drottinn, að gæta munns míns – innsiglaðu varir mínar! 
Frelsaðu mig frá löngun í hið illa. Forðaðu mér frá félagsskap við syndara og þeirra vondu verkum. Láttu mig sneiða hjá svallveislum þeirra. 
Hirting frá guðhræddum manni er mér til góðs – hún er áhrifaríkt læknislyf! Ég vil ekki hlusta á hrós vondra manna. Ég bið gegn illsku þeirra og svikum. 
Þegar foringjar þeirra fá sinn dóm, þegar þeim verður hrint fram af kletti, þá munu menn þessir hlusta á viðvörun mína og skilja að ég vildi þeim vel. 
Drottinn, ég horfi til þín í von um hjálp. Þú ert skjól mitt. Láttu þá ekki tortíma mér. 
Forðaðu mér frá gildrum þeirra. 
Hinir óguðlegu falli í eigin net, en ég sleppi heill á húfi. 
