﻿Sálmarnir.
123.
Ó, Guð, þú sem ríkir á himnum, ég hef augu mín til þín. 
Við horfum til Drottins Guðs, þráum miskunn hans og náð, rétt eins og þjónninn mænir á húsbónda sinn og þernan á húsmóður sína. 
Miskunna okkur, Drottinn, miskunna okkur. Við höfum fengið nóg af háði og spotti hinna hrokafullu. 
