﻿Sálmarnir.
122.
Ég varð glaður þegar sagt var við mig: „Komdu! Förum í musterið, hús Drottins!“ 
Við erum stödd í Jerúsalem og borgin er full af fólki. 
Allur Ísrael – þjóð Drottins – er kominn til að tilbiðja og lofa Drottin samkvæmt reglu lögmálsins. 
Sjáið! Þarna eru dómararnir í borgarhliðinu, þeir skera úr deilumálum fólksins. 
Biðjið þess að friður haldist í Jerúsalem og að þeir sem hana elska njóti heilla og hamingju. 
Ég bið að friður ríki umhverfis þig og hagsæld sé í höllum þínum, 
já, vegna bræðra minna og vina sem hér búa. 
Ég bið um hamingju þér til handa, Jerúsalem, vegna musteris Drottins sem í þér er. 
